Ræmurnar

Ræmurnar


Bútasaumsfélagið Ræmurnar var stofnað árið 2002 af nokkrum

bútasaumskonum á Hornafirði. Við stofnun félagsins vorum við
um 30 konur og hefur sú tala nánast verið óbreytt síðan. Ef einhver
dettur út þá kemur alltaf ný í staðin.
Í félaginu eru konur á öllum aldri sú elsta er komin yfir áttrætt en
sú yngsta rúmlega þrítug.
Við byrjuðum á því að hittast 1. sunnudag í mánuði yfir vetrartímann
og sauma saman en einhverra hluta vegna erum við farnar að
hittast annan hvern sunnudag yfir vetrar tímann. Við höfum
saumað 1.sunnudag í maí og svo tekið sumarfrí fram á 1 sunnudag
í september.

Við höfum leigt okkur aðstöðu í hjá Verkalýðsfélaginu sem býr yfir
góðum sal með góðum ljósum og þar er saumað og saumað frá kl. 9
að morgni og fram eftir degi.
Þá erum við stundum með óvissuverkefni, þar sem aðeins 2-3 vita
hvað er verið að gera. Svo höfum við verið með töskukvöld
þar sem við saumuðum okkur allar snyrtitöskur. Við vorum með
jólaspírukvöld jólapóstpoka kvöld, samkeppni um forsíðu á
gestabókina okkar og margt fleira.
Einnig hönnuðum og saumuðum við tösku utan um skurðarmottuna,
stikuna og allt annað sem fylgir okkur.
Það hefur verið hefð fyrir því að um miðjan október
förum við að Hótel Smyrlabjörgum í suðursveit og saumum þar
frá föstudagskvöldi og fram á sunnudag. Þá helgina fer lítill tími
í svefn. Oft er saumað fram á kl. 2 á nóttunni og byrjað strax
eftir morgunmat um kl 9:30. Við höfum samt alltaf litið aðeins
upp frá saumavélunum og fengið okkur gönguferð um nánasta
umhverfi því á Smyrlabjörgum er dekrað svo við okkur í mat að
nauðsynlegt er að brenna einhverjum kaloríum þessa helgina J . Við erum líka með langa helgi í Verkalýðshúsinu um miðjan febrúar. Þá er alltaf topp mæting og mikið gaman.
Svo höfum við verið með tvær bútasaumssýningar
í Pakkhúsinu og hafa þær verið vel sóttar.
Það eru allir velkomnir að líta við hjá okkur í Verkalýðshúsinu
1. og 3. hvern sunnudag, annaðhvort til þess að sauma eða bara
til þess að skoða það sem við erum að gera og kynna sér félagið
okkar.

ATH. nýir félagar eru alltaf velkomnir.

Flettingar í dag: 3
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 48
Gestir í gær: 18
Samtals flettingar: 51673
Samtals gestir: 12813
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 02:35:10

Vafraðu um

Saumadagar

Sauma Sunnudagar:

10.janúar 2010
24.janúar 2010
7.febrúar 2010
19.-20.-21.febrúar 2010
löng helgi í Verkalýðshúsinu
7.mars 2010
21.mars 2010
11.apríl 2010
25.apríl 2010
2.maí 2010
5.september 2010
19.september 2010
3.október 2010
14.-15.-16.-17.október
saumahelgi á Smyrlabjörgum
(með fyrirvara um að helgin sé laus)
31.október 2010
7.nóvember 2010
21.nóvember 2010
5.desember 2010



Bútasaumsfélagið Ræmurnar

Nafn:

Ræmurnar

Heimilisfang:

Höfn Hornafirði
clockhere

Tenglar